Vegvísir sýnir vörður að framtíðarstöðu


Styður við framþróun, stöðugar umbætur, stór verkefni eða stafræna umbreytingu

Stafræn stefnumótun og gerð vegvísis fyrir hagnýtingu í upplýsingatækni getur verið nytsamleg á margan hátt

Sem dæmi má nefna án þess að takmarka aðra möguleika:

  • Fyrsta skref í átt að stafrænni umbreytingu (digital transformation)
  • Ná stjórn á kostnaði
  • Undanfari stefnumiðaðrar útvistunar (strategic outsourcing)
  • Endurmat á stöðu útvistunar
  • Hvar draga eigi mörk innvistunar og útvistunar
  • Stöðugar umbætur eða fyrir stærri verkefni

Vegvísir getur verið afurð stafrænnar stefnumótunar, greininga eða vinnustofa fyrir t.d. vöruþróun.

Stefna og vegvísir fyrir hagnýtingu upplýsingatækni

Upplýsingatækni og hlutverk hennar í rekstri er orðið þýðingarmeira og þarf því að vera drifkraftur breytinga í stað þess að vera hindrun. Skýr vegvísir fyrir hagnýtingu upplýsingatækni er forsenda þess að ná árangri og skapa grunn að forskoti og framförum.

Hvort sem það er innan afmarkaðs sviðs fyrirtækisins eða fyrirtækið í heild sinni, er gerð góðrar stafrænnar stefnu og vegvísis upplýsingatæknimála fyrsta skrefið til að færa orku og fjármagn sem bundið er í daglegum rekstri í umbætur sem skila aðgreiningu og árangri. Því miður er það enn víða svo að hlutur daglegs reksturs upplýsingatækninnar er að aukast sem kemur niður á umbótum og framþróun. 

Ný tækni á að einfalda en ekki flækja

Algengt er að tæknikeðjan lengist vegna innleiðinga á nýjum lausnum en jafn mikilvægt er að einfalda og stytta aftur keðjuna til að halda sveigjanleika í hámarki og rekstrarkostnaði í lágmarki.

Auknar kröfur, samkeppni, tæknileg þróun og í einhverjum tilfellum samrunar hafa valdið því að tæknilegt flækjustig hefur aukist og tæknikeðjan lengst. Slíkt veldur óhagræði og gerir frekari breytingar þyngri, fyrir utan að daglegur rekstur eykst oft á kostnað umbóta og framþróunar.

Mikilvægt er að stíga reglulega tvö skref aftur á bak og horfa yfir sviðið, meta stöðuna og uppfæra vegvísi sem tekur mið af stefnu félagsins sem og stöðu og framtíðarhorfum í tæknimálum. Flétta þarf saman verkefni við hæfni mannauðs og ferla.

Við veitum frekari upplýsingar:


Guðmundur Arnar Þórðarson

Guðmundur Arnar Þórðarson

Einar Þór Bjarnason

Einar Þór Bjarnason

Íris Dögg Kristmundsdóttir

Íris Dögg Kristmundsdóttir

Kristján B. Einarsson

Kristján B. Einarsson