VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Reykjavík

Sviðsstjóri mannauðsmála

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður óskar eftir að ráða  öflugan og framsýnan einstakling í starf sviðsstjóra mannauðsmála. Viðkomandi mun koma til með að leiða þróun og framkvæmd mannauðsmála hjá VIRK ásamt því að styðja við stjórnendur og starfsfólk. Mikilvægt hlutverk sviðsstjóra mannauðsmála er einnig að efla liðsheild og samstarf ásamt því að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri vinnustaðamenningu þannig að VIRK sé ávallt eftirsóknarverður vinnustaður. Mannauðsstjóri VIRK heyrir beint undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn VIRK.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stjórnun mannauðsmála, ráðgjöf, fræðsla og stuðningur við stjórnendur
  • Stefnumótun og umbótastarf í mannauðsmálum
  • Ábyrgð á ráðningum og móttöku nýliða í samstarfi við stjórnendur
  • Starfsþróun og þátttaka í fræðslustarfi
  • Þróun árangursmælikvarða og gæðastjórnun
  • Umsjón og ábyrgð á jafnlaunakerfi og jafnlaunavottun
  • Skýrslugerð og upplýsingagjöf til forstjóra og stjórnar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
  • Reynsla af stefnumótun og stjórnun mannauðsmála
  • Reynsla af fræðslu- og starfsþróunarmálum er æskileg
  • Þekking á jafnlaunavottun, kjarasamningum og vinnurétti er æskileg
  • Framúrskarandi samskiptafærni, jákvætt viðmót og tilfinningagreind
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Mjög góð stafræn hæfni

Um VIRK:
Markmið og hlutverk VIRK er að efla  starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku og virkni á vinnumarkaði. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði. VIRK er eftirsóttur vinnustaður þar sem fjölbreyttur hópur starfsfólks vinnur að sameiginlegu markmiði. Gildi VIRK eru Fagmennska, Virðing og Metnaður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum.
VIRK leggur áherslu á faglegt og gott vinnuumhverfi, þar sem starfsfólk nýtur trausts, fær tækifæri til að vaxa og taka þátt í að þróa starfsemina áfram. Nánari upplýsingar má finna á: www.virk.is.

Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. 

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
 

Lausnamiðað ráðgjafa- og ráðningafyrirtæki

Intellecta er kraftmikið ráðgjafar- og ráðningafyrirtæki með einstaka samsetningu sem gerir það að verkum að við þekkjum bæði rekstur og mannauð. Við leggjum upp með að ráðgjöf okkar sé skýr, gagnleg og raunveruleg breyting til batnaðar.