MAGNA Lögmenn

Reykjavík

Fjölbreytt skrifstofustarf

MAGNA lögmannsstofa óskar eftir að ráða jákvæðan og skipulagðan einstakling í fjölbreytt skrifstofustarf. Starfið felur í sér hefðbundin skrifstofustörf, auk almennrar aðstoðar við lögmenn stofunnar. 
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, þjónustulund og nákvæmni auk þess að hafa góða hæfni í tölvuvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Aðstoð við gerð dómsskjala og skjalavinnslu. 
  • Almenn bókhaldstengd verkefni og gjaldkerastörf. 
  • Umsjón með innkaupum og birgðahaldi. 
  • Samskipti við þjónustuaðila og birgja. 
  • Skipulagning funda, veitinga og annarra viðburða á vegum stofunnar. 
  • Símsvörun, móttaka gesta, og almenn samskipti við viðskiptavini. 

Hæfniskröfur: 

  • Reynsla af sambærilegu starfi á skrifstofu er æskileg. 
  • Góð tölvukunnátta, sérstaklega í Microsoft Office og rafrænum vinnukerfum. 
  • Skipulagshæfni, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Framúrskarandi þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum. 
  • Jákvætt viðmót og fagleg framkoma.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

Um MAGNA Lögmenn:
MAGNA býður upp á alhliða lögfræðiþjónustu. Grundvallarstefna stofunnar er að veita ávallt gæðaþjónustu þar sem áhersla er lögð á hraða, árangursríka afgreiðslu og sérhæfingu til að fullnægja sívaxandi kröfum. Hjá MAGNA starfar fjöldi lögmanna og lögfræðinga með sérfræðiþekkingu á ýmsum réttarsviðum, auk góðs teymis skrifstofufólks. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu fyrirtækisins www.magna.is

Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2025. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður yfir umsóknir jafnóðum og þær berast. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar í trúnaði og umsækjendum svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.

Lausnamiðað ráðgjafa- og ráðningafyrirtæki

Intellecta er kraftmikið ráðgjafar- og ráðningafyrirtæki með einstaka samsetningu sem gerir það að verkum að við þekkjum allt frá stefnumótun, ferlum og mannauð til upplýsingatækni. Við leggjum upp með að ráðgjöf okkar sé skýr, gagnleg og raunveruleg breyting til batnaðar.