Landhelgisgæsla Íslands leitar að sveigjanlegum, skipulögðum og drífandi einstaklingi til að sinna stöðu umsjónaraðila á siglingasviði á starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Siglufirði. Um er að ræða umsjón með því varðskipi Landhelgisgæslunnar sem gert er út frá Siglufirði, gerð og umsjón handbóka og þjálfunaráætlana fyrir siglingasvið auk annarra tilfallandi verkefna sem snúa að rekstri varðskipa Landhelgisgæslunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón og eftirlit með varðskipum stofnunarinnar þegar þau eru í höfn á Siglufirði
- Þátttaka í gerð, endurskoðun og eftirfylgni handbóka og verklagsreglna siglingasviðs
- Þátttaka í gerð gæðaferla siglingasviðs, t.d. á sviði þjálfunar og umhverfismála
- Samskipti við áhafnir og aðkoma að ráðningum
- Samskipti við verktaka og birgja vegna varðskipa
- Verkefni er varða rekstur skipa stofnunarinnar
- Vegna eðlis verkefna þegar varðskip eru við bryggju þarf viðkomandi að sinna bakvöktum og vera til taks utan hefðbundins vinnutíma samkvæmt skilgreindu skipulagi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking á siglingum og skipum er kostur
- Þekking og reynsla í gerð verkferla er kostur
- Sveigjanleiki og áhugi á að tileinka sér nýja færni
- Mjög góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Snyrtimennska og góð umgengni
- Góð almenn tölvufærni
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 250 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks!
Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta – Fagmennska. Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð. Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veitir Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.