Innkaupafulltrúi

Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða reynslumikinn og öflugan innkaupafulltrúa  til starfa. Starfið snýr að framkvæmd innkaupa ásamt samskiptum við birgja og birgðastýringu og því er nauðsynlegt að viðkomandi hafi  góða reynslu sem nýtist í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framkvæmd innkaupa
  • Birgðaeftirlit í samvinnu við vörustjóra
  • Birgðastýring
  • Samskipti við birgja

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Að lágmarki 5 ára reynsla í sambærilegu starfi
  • Haldbær reynsla af birgðastýringakerfi
  • Þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni
  • Nákvæmni og glöggt auga fyrir tölum
  • Skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi
  • Frumkvæði og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakavottorð skilyrði

Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.  Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Birna Dís Bergsdóttir (birna@intellecta.is) í síma 511 1225.

 

Solution-oriented consulting and recruitment firm

Intellecta is a dynamic recruitment and consulting firm with a unique composition that enables us to understand everything from strategy development, processes and human resources to information technology. We aim to provide consulting that is clear, useful and brings about real positive change.