Forstjóralaunagreining
Laun forstjóra hafa bein áhrif á samkeppnishæfni og rekstrarárangur. Hjá Intellecta bjóðum við sérhæfða greiningu á forstjóralaunum sem veitir stjórnendum traustan grundvöll til ákvarðana um launastefnu og samkeppnisstöðu.
Gögn og innsýn fyrir markvissa ákvarðanatöku
Laun forstjóra hafa bein áhrif á samkeppnishæfni og rekstrarárangur. Intellecta styður stjórnendur með sérhæfðri þjónustu á sviði forstjóralauna með tveimur meginleiðum:
Sérsniðnar skýrslur um forstjóralaunaviðmið fyrir fyrirtæki og forstjóra sem vilja fá skýra mynd af markaðsviðmiðum.
Árlega skýrslu um forstjóralaun hjá fyrirtækjum í Nasdaq Iceland kauphöllinni sem veitir dýrmæta innsýn í launaþróun stjórnenda skráðra félaga á Íslandi.
Forstjóralaunaskýrsla byggð á gögnum frá 2024 er komin út
Í árlegri skýrslu Intellecta um forstjóralaun hjá félögum í Nasdaq Iceland kauphöllinni er greint frá helstu þáttum sem skýra mun á launum forstjóra, meðal annars stærð fyrirtækja og samanburði milli skráðra og óskráðra félaga. Skýrslan byggir á gögnum úr ársskýrslum frá árinu 2024 og öðrum tengdum gögnum frá því ári.
Skýrslan inniheldur einnig greiningu á umbunarkerfum stjórnenda og stjórnarlaunum byggða á opinberum gögnum. Með þessum upplýsingum fá stjórnendur og stjórnir traustan grundvöll til að taka upplýstar ákvarðanir um launasetningu og umbunarkerfi í takt við þróun markaðarins.
Hvað felst í skýrslunni?
Samanburður á launum forstjóra eftir stærð fyrirtækja
Greining á launamun milli skráðra og óskráðra félaga
Yfirlit yfir umbunarkerfi stjórnenda
Greining á stjórnarlaunum
Viðmið fyrir launasetningu í samanburði við önnur fyrirtæki
Hvernig nýtist skýrslan?
Með því að nýta gögnin úr skýrslunni geta stjórnendur og stjórnir:
Fengið skýra mynd af markaðsviðmiðum fyrir forstjóralaun
Greint eigin launasetningu í samanburði við sambærileg fyrirtæki
Stutt stefnumótun í umbunarkerfum og launaviðræðum með traustum gögnum
Pantaðu skýrsluna og fáðu forskot í ákvörðunum
Verð: 275.000 kr. án vsk.
Hver skýrsla er sérmerkt kaupanda og eingöngu ætluð til innanhússnotkunar.
Forstjóralaunaskýrslan kemur út í mars á hverju ári. Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að kaupa skýrslu eða afla þér upplýsinga um hana.