Einstaklingsráðgjöf
Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin á vinnumarkaði, leitar að nýjum tækifærum eða vilt einfaldlega skerpa á framsetningu gagna þinna, þá getur fagleg ráðgjöf skipt sköpum. Ráðningasvið Intellecta býður upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf sem hjálpar þér að koma þínum styrkleikum á framfæri.
Hvað felst í einstaklingsráðgjöf?
Þjónustan er sniðin að þínum þörfum og felur m.a. í sér:
- Einkaviðtal með ráðningaráðgjafa: þar sem farið er yfir styrkleika, markmið og næstu skref í atvinnuleitinni.
- Ferilskrá og kynningarbréf: yfirferð, umbætur og hagnýtar ábendingar sem auka áhrif þinna gagna.
- Ábendingar og leiðsögn: persónuleg ráð og hagnýt atriði sem nýtast í umsóknum og viðtölum.

Afhverju að velja einstaklingsráðgjöf hjá Intellecta?
Við höfum margra ára reynslu af ráðningum og ráðgjöf og vitum hvað skiptir máli þegar kemur að ráðningarferli.
Með okkar aðstoð færð þú:
- Faglega yfirferð á umsóknargögnum
- Markvissar ábendingar um næstu skref
- Stuðning sem eykur líkurnar á árangri í atvinnuleit
Fjárfestu í þér og framtíðinni
Einstaklingsráðgjöfin er fjárfesting í þér og framtíðinni, hún snýst um að styrkja þig sem einstakling, skýra markmið þín og hjálpa þér að nýta styrkleika þína til fulls. Með faglegum stuðningi færðu tækifæri til að vaxa, takast á við áskoranir af meiri festu og byggja upp sjálfstraust og færni sem nýtist þér bæði í starfi og einkalífi.