Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf kerfisstjóra. Leitað er að drífandi einstaklingi í spennandi og fjölbreytt starf. Um fullt starf er að ræða og er kerfisstjóri hluti af öflugu teymi á skrifstofu rekstrar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Rekstur og viðhald upplýsingatæknikerfa
- Rekstur hugbúnaðarkerfa í samvinnu við hýsingaraðila
- Uppsetning og viðhald á tækjabúnaði
- Þjónusta, tæknilegur stuðningur og fræðsla fyrir starfsfólk
- Verkefnastýring verkefna á sviði upplýsingatækni
- Samskipti við birgja og aðra samstarfsaðila
- Úrbætur á sviði upplýsingaöryggis
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Haldbær reynsla af sambærilegu starfi, a.m.k. síðustu þrjú ár, skilyrði
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. tölvunarfræði, tæknifræði, kerfisstjórnun eða önnur sambærileg menntun
- Þekking á stýrikerfum netþjóna og útstöðva skilyrði
- Þekking á gagnagrunnum kostur
- Grunnþekking á rekstri netkerfa og þráðlauss aðgangsbúnaðar
- Reynsla af öryggisvöktun (SIEM) og samstarfi við öryggisvöktunarsetur (SOC) æskileg
- Skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og umbótasinnuð hugsun
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Krafa um mjög góða íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Um Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands er menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefnum skjalasafn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns Íslands við ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir (thuridur@intellecta.is)