Volcano Express óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan sölustjóra til starfa á skrifstofu sína á Íslandi. Um er að ræða spennandi starf í ört vaxandi umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með skrifstofu Volcano Express í Hörpu
- Þróa og stýra samstarfi við lykilaðila í ferðaþjónustu
- Ábyrgð á gerð söluáætlana
- Sala á sýningu til ferðaþjónustuaðila
- Staðgengill framkvæmdastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af söluferlum og markaðsstarfi í ferðaþjónustu
- Reynsla af bókunarkerfinu Bókun er kostur
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Um Volcano Express:
Starfsemi fyrirtækisins gengur út á magnaða eldfjallasýningu þar sem háþróuð margvíddarbíótækni býður þér upp á á að upplifa krafta íslenskrar náttúru og henni miðlað á einstakan hátt. Upplifunin veitir innsýn í ógnarkraft íslenskra eldsumbrota.
Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) í síma 511-1225.