Náttúruverndarstofnun

Reykjavík

Verkefnastjóri framkvæmda

Náttúruverndarstofnun óskar eftir að ráða skipulagðan og metnaðarfullan einstakling í verkefnastýringu framkvæmdaverkefna á friðlýstum svæðum. Verkefnin eru fjölþætt en felast einkum í  uppbyggingu innviða og landvarðahúsa og utanumhaldi því tengdu. Verkefnastjórinn mun halda utan um framkvæmdir á svæðunum í nánu samstarfi við þjóðgarðsverði og svæðisstjóra. Starfinu fylgja mikil samskipti við framkvæmdaaðila og opinbera aðila. Um fullt starf er að ræða sem tilheyrir Þróunarsviði Náttúruverndarstofnunar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórn framkvæmda vegna uppbyggingar innviða
  • Utanumhald verkefna í eigna- og verkefnaskrá stofnunarinnar
  • Fulltrúi Náttúruverndarstofnunar í verkefnum í umsjón Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna
  • Leyfismál
  • Samningagerð, samskipti og eftirfylgni við verktaka og hönnuði
  • Gerð framkvæmda- og kostnaðaráætlana
  • Gerð og rýni útboðs- og verðtilboðsgagna
  • Samantekt og miðlun upplýsinga um framgang verkefna (t.d. PowerBI skýrslur o.þ.h)
  • Þarfagreining og forgangsröðun verkefna í samvinnu við svæðisstjóra um allt land

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði verkfræði eða tæknifræði
  • Haldbær reynsla af verkefnastýringu framkvæmdaverkefna
  • Þekking á skipulagsmálum sveitarfélaga er kostur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Um Náttúruverndarstofnun:
Náttúruverndarstofnun hefur umsjón með um 130 náttúruverndarsvæðum þ.m.t. Snæfellsjökulsþjóðgarði og Vatnajökulsþjóðgarði. Eitt af okkar stærstu verkefnum í náttúruvernd er uppbygging innviða með bætt aðgengi, öryggi og verndun að leiðarljósi. Framundan eru margvísleg og spennandi verkefni á þessu sviði.
Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi með starfsemi vítt og breitt um landið. Við búum yfir mikilli sérfræðiþekkingu, höfum tækifæri til að þróast í starfi og ástunda endurmenntun. Vinnuvikan er 36 stundir.
Náttúruverndarstofnun starfar á 16 starfsstöðvum um landið sem eru:  Hvolsvöllur, Geysir, Selfoss, Garðabær, Hellissandur, Hvanneyri, Patreksfjörður, Ísafjörður, Akureyri, Gígur í Mývatnssveit, Egilsstaðir, Ásbyrgi, Skaftafell, Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustur og Reyðarfjörður.

Frekari upplýsingar um starfið:
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal henni fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að verkefnastjórinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) í síma 511 1225 og Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar, í síma 556 6800.