Torfi Markússon

Torfi er einn af eigendum Intellecta og starfar við ráðningar.

Torfi hefur mikla reynslu af ráðningum stjórnenda, sérfræðinga og annarra lykilmanna. Hann hefur langa og víðtæka reynslu af starfsmannastjórnun og mannauðstengdri ráðgjöf. Hann var m.a. starfsmannastjóri TM Software og dótturfyrirtækja í 10 ár og starfaði einnig í 9 ár sem ráðningastjóri hjá Ráðgarði hf. þar sem hann einbeitti sér að ráðningum stjórnenda og sérfræðinga.

Hans sérhæfing eru ráðningar tengdar upplýsingatækni, bæði sérfræðinga og lykil stjórnenda.

Torfi er menntaður rekstrarfræðingur.