Guðmundur Arnar Þórðarson


Sími: 617-3157 | Tölvupóstur: [email protected]
Linkedin prófíll



Profile mynd af Guðmundi Arnari Þórðarsyni, ráðgjafa og einn eigenda Intellecta

Guðmundur Arnar leiðir upplýsingatækniráðgjöf Intellecta. Hann hefur umfangsmikla reynslu af ráðgjöf og verkefnastýringu stafrænna umbreytingaverkefna fyrir fyrirtæki og hið opinbera. Guðmundur er gjarnan nýttur sem "CIO" og kemur inn í verkefni eftir þörfum. Hann veitir einnig ráðgjöf í tengslum við úttektir á upplýsingakerfum, hagræðingu, verkefnastjórnun, stefnumótun, stjórnskipulag og útvistun.

Guðmundur hefur yfir 20 ára reynslu af upplýsingatækni sem stjórnandi, ráðgjafi og sérfræðingur, en hann starfaði áður hjá Þekkingu og þar á undan hjá Origo og RB.

Guðmundur Arnar er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og PMD frá Háskóla Reykjavíkur auk fjölbreyttrar menntunar á sviði upplýsingatækni og verkefnastjórnunar.