Verkfræðingur/tæknifræðingur

Hampiðjan

Reykjavik

Við leitum að starfsmanni sem hefur mikinn áhuga á veiðum og veiðarfærum til að taka þátt í hönnun, teikningu og þróun á botn- og flottrollum. 

Starfssvið: 

  • Teikning í AutoCAD
  • Hermun á hegðun trolla í þrívíddarforritum
  • Ráðgjöf til útgerða og skipstjóra
  • Þátttaka í sölustarfi
  • Útreikningar á toggetu fiskiskipa og togmótstöðu veiðarfæra
  • Þátttaka í vöruþróun á efnum í veiðarfæri
  • Þróun á veiðitækni framtíðarinnar í samstarfi við útgerðir og tæknifyrirtæki í sjávarútvegi
Menntun og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun í tæknigrein
  • Góð kunnátta á AutoCAD 
  • Reynsla af botn- og flottrollsveiðum er kostur
  • Menntun og starfsreynsla í netagerð er kostur
  • Góð enskukunnátta

Starfið kallar á ferðalög og stundum sjóferðir með viðskiptavinum. 

Um Hampiðjuna: 
 Hampiðjan er leiðandi fyrirtæki í heiminum í þróun, sölu og þjónustu á framúrskarandi veiðarfærum til fiskiskipa. Fyrirtækið er jafnframt í fararbroddi í þróun og framleiðslu á ofurköðlum sem seldir eru víða um heim. Hampiðjan er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í 21 landi. Dótturfyrirtækin eru 51 talsins, starfsstöðvarnar eru 76 og hjá samstöðunni starfa nú um 2000 starfsmenn. 

Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2024. Umsókn óskast fyllt út og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir einstaklingar óháð kyni og uppruna eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. 

Nánari upplýsingar veitir Hafdís Ósk Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.