Ráðgjafi viðhalds og mannvirkja

Verksýn

Reykjavík

Verksýn óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf ráðgjafa vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, til að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ástandsgreiningar á mannvirkjum og hönnun endurbóta

  • Umsjón með verk- og kostnaðaráætlunum ásamt kostnaðareftirliti

  • Gerð útboðs- og verklýsinga

  • Verkefnastjórnun, undirbúningur og skipulag

  • Almenn framkvæmdaráðgjöf og eftirlit

  • Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • ​​Menntun á sviði bygginga-, verk-, eða tæknifræði, arkitektúrs eða jafnvel reynslumiklir iðnmeistarar/iðnfræðingar

  • Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda er kostur

  • Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni

  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði


Um Verksýn:
Verksýn var stofnað árið 2006 og hefur síðan þá sérhæft sig í ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum. Fyrirtækið hefur einnig sinnt fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf í tengslum við nýframkvæmdir ásamt almennri framkvæmdaráðgjöf. Markmið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á sem besta mögulegan hátt, stuðla að auknum gæðum húsnæðis á Íslandi og safna og miðla af þekkingu á viðhaldi og endurbótum fasteigna.
Verksýn er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem starfar þéttur hópur reynslumikilla sérfræðinga í góðu vinnuumhverfi.

Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.