Ráðgjafi í viðskiptalausnum

Wise

Reykjavik

 
Wise óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í fjölbreytt starf ráðgjafa viðskiptalausna á skrifstofur fyrirtækisins í Reykjavík og á Akureyri.

Leitað er lausnamiðuðum einstakling sem hefur áhuga á hröðum heimi upplýsingatækninnar. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir framúrskarandi samskiptahæfni og drifkrafti.



Helstu verkefni og ábyrgð:
  • Ráðgjöf til viðskiptavina á Microsoft Business Central
  • Ráðgjöf um notkun kerfa fyrirtækisins
  • Þarfagreiningar, ferlagreiningar og þjónusta
  • Samskipti við viðskiptavini og virk tengslamyndun

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í upplýsingatækni
  • Þekking og áhugi á stafrænum lausnum og nýjungum
  • Reynsla af notkun Microsoft Business Central / Navision
  • Reynsla af bókhaldi og launavinnslu er kostur
  • Reynsla af innkaupum, birgðahaldi, vöruhúsum og tollskýrslugerð er kostur
  • Reynsla og áhugi á Power Platform er kostur
  • Drifkraftur og frumkvæði
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

Wise er ört vaxandi þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum og býður yfirgripsmikla þjónustu fyrir fyrirtæki með það að markmiði að veita viðskiptavinum forskot í rekstri þeirra.
Í boði er skemmtilegt starf hjá spennandi fyrirtæki með miklum framtíðartækifærum.

Umsóknarfrestur er til og með  8. janúar 2025. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. 

Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (
[email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.