Sviðsstjóri verndarsviðs
Útlendingastofnun
Kópavogur
Útlendingastofnun leitar að sviðsstjóra til að leiða verndarsvið stofnunarinnar. Verndarsvið hefur það hlutverk að afgreiða umsóknir um alþjóðlega vernd, útgáfu ferðaskilríkja og vegabréfa fyrir útlendinga, fjölskyldusameiningar flóttafólks og aðstoð við sjálfviljuga heimför. Starfið er umfangsmikið og krefjandi. Helstu verkefni eru dagleg stjórnun sviðsins, ábyrgð á að úrvinnsla mála sé fagleg, skilvirk og fullnægi innlendum og erlendum skuldbindingum sem kveðið er á um í lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum, þátttaka í stefnumótun og samskipti við ráðuneyti, stofnanir og aðra samstarfsaðila, þ.m.t. samskipti og viðtöl við fjölmiðla. Í starfinu geta falist ferðalög erlendis.
Sviðsstjóri verndarsviðs Útlendingastofnunar þarf að búa yfir mikilli leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Sviðsstjóri skal hafa reynslu af opinberri stjórnsýslu og vera reiðubúinn að taka þátt í og vinna að stöðugum umbótum. Sviðsstjóri verndarsviðs heyrir undir forstjóra Útlendingastofnunar.
Í boði er áhugavert starf á spennandi vinnustað sem er á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá Útlendingastofnun starfar um 120 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Útlendingastofnun leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu. Stofnunin er brautryðjandi í styttingu vinnuvikunnar og hefur boðið öllu starfsfólki upp á 36 stunda vinnuviku frá 2017.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og skipulag verndarsviðs
- Að starfsemi sviðsins sé í samræmi við löggjöf, stefnur og markmið stofnunar
- Þátttaka í stefnumótun
- Að umsóknir og erindi séu afgreidd á faglegan og skilvirkan hátt
- Miðlun upplýsinga gagnvart samstarfsaðilum og samfélagi
- Að verkferlar séu til staðar, þeim fylgt og uppfærðir
- Að unnið sé að stöðugum umbótum innan sviðsins
Hæfniskröfur
- BA gráða í lögfræði ásamt meistaragráðu í lögfræði eða embættispróf í lögfræði
- Farsæl stjórnunarreynsla er skilyrði
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði
- Þekking og reynsla af málefnum sviðsins er kostur
- Brennandi áhugi á stafrænum lausnum
- Skipulagshæfni og frumkvæði
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Geta og vilji til að koma fram í fjölmiðlum
- Geta til að vinna undir álagi og leiða umbótastarf
- Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að forgangsraða verkefnum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt mynd og kynningarbréfi sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað verður. Í einstaka tilfellum leggur stofnunin einnig verkefni fyrir umsækjendur í ráðningarferlinu. Starfshlutfall er 100% og um er að ræða ótímabundna ráðningu með sex mánaða reynslutíma. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en 1. apríl nk.
Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.01.2025.
Nánari upplýsingar veitir Birkir Örn Hauksson, mannauðsstjóri Útlendingastofnunar ([email protected]).