Ráðgjafi viðhalds og mannvirkja
Verksýn
Reykjavík
Verksýn óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf ráðgjafa vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, til að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
-
Ástandsgreiningar á mannvirkjum og hönnun endurbóta
-
Umsjón með verk- og kostnaðaráætlunum ásamt kostnaðareftirliti
-
Gerð útboðs- og verklýsinga
-
Verkefnastjórnun, undirbúningur og skipulag
-
Almenn framkvæmdaráðgjöf og eftirlit
-
Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Menntun á sviði bygginga-, verk-, eða tæknifræði, arkitektúrs eða jafnvel reynslumiklir iðnmeistarar/iðnfræðingar
-
Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda er kostur
-
Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
-
Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
-
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Um Verksýn:
Verksýn var stofnað árið 2006 og hefur síðan þá sérhæft sig í ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum. Fyrirtækið hefur einnig sinnt fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf í tengslum við nýframkvæmdir ásamt almennri framkvæmdaráðgjöf. Markmið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á sem besta mögulegan hátt, stuðla að auknum gæðum húsnæðis á Íslandi og safna og miðla af þekkingu á viðhaldi og endurbótum fasteigna.
Verksýn er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem starfar þéttur hópur reynslumikilla sérfræðinga í góðu vinnuumhverfi.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.