Burðarvirkjahönnuður

VSB

Hafnarfjörður

VSB verkfræðistofa óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf hönnuðar burðarvirkja. Hönnuður burðarvirkja starfar á byggingarsviði VSB. Um framtíðarstarf er að ræða og í boði eru spennandi verkefni í frábæru starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hönnun burðarvirkja og gerð séruppdrátta
  • Ábyrgð á gerð og gæðum hönnunargagna í samræmi við gæðakerfi og stefnu VSB
  • Önnur tilheyrandi verkefni við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
  • Gerð útboðsgagna, kostnaðaráætlana, verklýsinga og greinagerða
  • Samskipti við verkkaupa og aðra hagaðila
  • Almenn ráðgjöf til viðskiptavina og samstarfsaðila

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun á sviði tækni- eða verkfræði
  • Reynsla af brúarhönnun sem og af hönnun for- og eftirspenntra mannvirkja
  • Góð kunnátta á Revit
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

Fríðindi í starfi:
  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinnustefna
  • Sími og símareikningur greiddur af VSB
  • Íþróttastyrkur

Um VSB
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði skipulags, hönnunar og framkvæmda sem veitir viðskiptavinum ráðgjöf þar sem hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði. Á VSB er öflugt byggingarsvið þar sem starfa í dag 11 sérfræðingar við hönnun burðarvirkja, rafmagns, lagna- og loftræsingar.  VSB hefur aðsetur að Bæjahrauni 20 í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VSB www.vsb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.