Verkefnastjóri

VSB

Hafnarfjörður

VSB óskar eftir að ráða reynslumikinn verkefnastjóra til þess að stýra fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Viðkomandi kemur til með að stýra verkefnum þvert á öll svið fyrirtækisins og heyrir undir framkvæmdastjóra. Um framtíðarstarf er að ræða og í boði eru spennandi verkefni í frábæru starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stýring, skipulag og eftirfylgni með verkefnum frá upphafi til loka
  • Ábyrgð á gerð og framkvæmd tíma-, verk- og kostnaðaráætlana
  • Samskipti við hagsmunaaðila og samstarfsfólk
  • Skýrslugerð og miðlun upplýsinga til stjórnenda, verkkaupa og annarra hagsmunaaðila
  • Leiða teymi áfram til árangurs

Menntun og hæfni:
  • Háskólapróf á sviði verkfræði, verkefnastjórnunar eða annarra skyldra greina
  • Haldbær reynsla af verkefnastjórnun og IMPA vottun er kostur
  • Reynsla af verkefnastýringu í innviðaverkefnum og skipulagi.
  • Framúrskarandi leiðtogahæfileikar, góð hæfni í að leiða teymi og stuðla að árangursríkri samvinnu.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti

Fríðindi í starfi:
  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinnustefna
  • Sími og símareikningur greiddur af VSB
  • Íþróttastyrkur

Um VSB
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði mannvirkjagerðar og framkvæmda sem veitir viðskiptavinum ráðgjöf þar sem hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði. Á VSB er öflugt byggðatæknisvið þar sem starfa í dag 12 sérfræðingar við hönnun gatna, veitna, samgönguskipulag og mælingar. VSB hefur aðsetur að Bæjahrauni 20 í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VSB www.vsb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected])  og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og í síma 511 1225.