Byggingafræðingur/Byggingartæknifræðingur

Verksýn

Reykjavík

Verksýn óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf byggingafræðings/byggingartæknifræðings, til að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ástandsgreiningar á mannvirkjum og hönnun endurbóta
  • Umsjón með verk- og kostnaðaráætlunum ásamt kostnaðareftirliti
  • Gerð útboðs- og verklýsinga
  • Verkefnastjórnun, undirbúningur og skipulag
  • Almenn framkvæmdaráðgjöf og eftirlit
  • Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Menntun á sviði bygginga- eða tæknifræði
  • Aðilar með skylda menntun, s.s. iðnfræði, arkitektúr, verkfræði eða reynslumiklir iðnmeistarar koma einnig til greina
  • Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Um Verksýn:
Verksýn var stofnað árið 2006 og hefur síðan þá veitt sérhæfða ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum. Fyrirtækið vinnur einnig að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf í tengslum við nýframkvæmdir.
Markmið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á sem besta mögulegan hátt, stuðla að auknum gæðum húsnæðis á Íslandi og safna og miðla af þekkingu á viðhaldi og endurbótum fasteigna.

Verksýn er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem starfar þéttur hópur reynslumikilla sérfræðinga í góðu vinnuumhverfi.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.