Kerfisstjóri/sérfræðingur upplýsingatæknikerfa

Landhelgisgæsla Íslands

Keflavíkurflugvöllur

Hefur þú góða þekkingu og reynslu af kerfis- og tæknimálum og langar að prófa nýjar áskoranir í flóknu og krefjandi umhverfi?

Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og traustan liðsfélaga í samhentan hóp sérfræðinga sem bera ábyrgð á kerfis- og tæknimálum á varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar, þar með talið rekstri, viðhaldi, uppsetningu og þróun á kerfis- og tæknibúnaði Atlantshafsbandalagsins (NATO) hér á landi.

Búnaðurinn samanstendur m.a. af stjórnstöðvar-, ratsjár-, fjarskipta-, samskipta- og kerfisbúnaði sem staðsettur er í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og á ratsjár- og fjarskiptastöðvum Atlantshafsbandalagsins hér á landi. Starfsstöð er á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Starfið krefst m.a. skipulagðra og tilfallandi ferða út á ratsjárstöðvar á öllum tímum ársins. 

Unnið er samkvæmt kröfum, stöðlum, reglum og leiðbeiningum Atlantshafsbandalagsins og fær viðkomandi viðeigandi þjálfun í þeim verkefnum bæði innanlands og erlendis. Um er að ræða dagvinnu ásamt tilfallandi verkefnum utan dagvinnutíma. Vegna viðbragðs utan dagvinnutíma er æskilegt að viðkomandi sé staðsettur innan 15 mínútna akstursfjarlægðar frá stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þátttaka í daglegum rekstri sérhæfðra stjórn-, hugbúnaðar og upplýsingatæknikerfa Atlantshafsbandalagsins 
  • Reglubundnar uppfærslur á hug- og vélbúnaði
  • Stuðningur við notendur
  • Uppfærsla skjala, leiðbeininga og teikninga 
  • Þátttaka í kerfis- og tæknisamstarfi Atlantshafsbandalagsins
  • Öryggismál
  • Önnur tengd verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. kerfisstjórnun, tölvunar- og/eða kerfisfræði
  • Reynsla af rekstri tölvukerfa, s.s. Windows (AD, EX, Group policies), VMware Virtual Infrastructure, Linux og SQL
  • Nám og/eða reynsla af rekstri flókinna netkerfa er kostur
  • Fagmennska, samskiptahæfni og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
  • Reglusemi, nákvæmni, snyrtimennska og stundvísi
  • Góð enskukunnátta
  • Ökuréttindi
  • Vegna eðlis starfs og starfseminnar er búseta á Suðurnesjum kostur
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Um Landhelgisgæsluna:
Landhelgisgæsla Íslands er borgaraleg öryggis-, eftirlits- og löggæslustofnun sem sinnir öryggisgæslu og björgun á hafi úti og fer með löggæslu á hafinu. Samkvæmt lögum nr. 52/2006 um Landhelgisgæslu Íslands er henni falið að gæta ytri landamæra og standa vörð um fullveldisrétt Íslands á hafsvæðinu kringum landið. Landhelgisgæslan fer með daglega framkvæmd öryggis- og varnarmála sbr. varnarmálalög nr. 34/2008, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar NATO/LHG og ratsjár- og fjarskiptastöðva. 
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 230 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks. Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta - Fagmennska.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is

Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 2. desember 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.