Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg

Reykjavík

Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Leitað er að öflugum og framsæknum leiðtoga til að leiða málaflokkinn inn í spennandi tíma.

Skóla- og frístundasvið ber ábyrgð á skipulagi, rekstri og þjónustu leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og félagsmiðstöðva og hefur umsjón með daggæslu í heimahúsum. Jafnframt heyrir rekstur skólahljómsveita og eins tónlistarskóla undir sviðið.

Markmið sviðsins er að veita börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða skóla- og frístundaþjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð barna að leiðarljósi. Þjónusta sviðsins snertir rúmlega 22 þúsund börn og fjölskyldur þeirra. Fjöldi starfsfólks á sviðinu er um sex þúsund.

Launakjör sviðsstjóra heyra undir ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Sviðsstjóri heyrir beint undir borgarstjóra og um störf hans gilda reglur um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Ráðið er í starf sviðsstjóra af borgarráði til fimm ára í senn.


Ábyrgðasvið
  • Ábyrgð á stjórnun, framkvæmd og samhæfingu þjónustu skóla- og frístundasviðs í samræmi við lög og reglugerðir, menntastefnu Reykjavíkurborgar og aðrar stefnur borgarinnar sem málaflokkinn varða.
  • Ábyrgð á rekstri og stjórnsýslu sviðsins, þ.m.t. fjármálum og starfsmannamálum.
  • Ábyrgð á framkvæmd skóla- og frístundaþjónustu í miðstöðvum borgarinnar.
  • Undirbúningur mála fyrir skóla- og frístundaráð og ábyrgð og eftirfylgni með ákvörðunum ráðsins.
  • Stefnumótun í skóla- og frístundamálum í samvinnu við skóla- og frístundaráð.
  • Forysta við þróun og innleiðingu nýrra hugmynda og úrræða í skóla- og frístundamálum ásamt mati á árangri og eftirliti.
  • Ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlun ásamt annarri áætlanagerð fyrir skóla- og frístundasvið.
  • Samráð og samstarf við sjálfstætt starfandi leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í Reykjavík.
  • Samráð og samstarf við opinbera aðila í skóla- og frístundamálum innanlands og utan.
  • Tilheyrir yfirstjórn og neyðarstjórn Reykjavíkurborgar.

Menntunar og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er nauðsynleg.  
  • Víðtæk þekking og reynsla af málefnum leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs.
  • Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla ásamt reynslu af því að leiða breytingar.
  • Víðtæk þekking og reynsla af rekstri og mannaforráðum.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, stefnumótunarvinnu, þjónustustarfsemi og áætlunargerð.
  • Þekking og reynsla af samningagerð og undirbúningi samninga.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Framsýni, metnaður, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Mjög góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur.

Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember, 2024
Umsjón með ráðningu hefur ráðgjafafyrirtækið Intellecta. Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Skipuð verður þriggja manna hæfisnefnd sem mun vinna úr öllum umsóknum í samráði við Intellecta. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Lóa Birna Birgisdóttir sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar ([email protected]).
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.