RARIK
Án staðsetningar
Sérfræðingur samskipta og samfélags
Langar þig að taka stökkið og verða hluti af liðsheild sem innleiðir þriðju orkuskiptin á Íslandi?
Við leitum að verklyndum, ófeimnum og orðheppnum einstaklingi með ákafan áhuga á gagnlegum samskiptum. Við viljum ráða liðsfélaga sem sér gæðin í því að vinna öll verk vel, stór og smá. Ef þú telur að samskipti séu hreyfiafl hugmynda, hafðu þá samband.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón og gerð efnis á vef- og samfélagsmiðlum
- Hugmyndavinna, þróun og útfærsla á stafrænni miðlun og kynningarefni
- Þátttaka í markaðssetningu, sköpun ímyndar og undirbúningi viðburða
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af notkun vefumsjónarkerfa og stýringu samfélagsmiðla
- Reynsla af innri og ytri samskiptamiðlun
- Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Hugmyndaauðgi og drifkraftur
- Jákvætt hugarfar og þjónustulund
- Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
- Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
- Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun
- Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
Nýju skipulagi fylgja ný tækifæri. Með teymisvinnu og öflugri liðsheild náum við lengra. Öll störfin eru án staðsetningar og leggjum við áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika mannauðs. Við tökum vel á móti öllum.
Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Henrietta Þóra Magnúsdóttir ([email protected]).