Sveitarstjóri Múlaþings

Múlaþing

Sveitarfélagið Múlaþing óskar eftir að ráða sveitarstjóra. Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn að stýra starfsemi sveitarfélagsins og áframhaldandi uppbyggingu og þróun þess í samstarfi við sveitarstjórn. Gert er ráð fyrir því að nýr sveitarstjóri geti hafið störf um næstu áramót.
 
Helstu verkefni:

  • Æðsti yfirmaður starfsfólks sveitarfélagsins og ber ábyrgð á daglegum rekstri þess.
  • Ábyrgð á undirbúningi og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar, byggðarráðs og annarra nefnda ásamt framfylgd ákvarðana sveitarstjórnar og byggðarráðs.
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins ásamt mannauðsmálum. Ábyrgð á að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum og samþykktum.
  • Talsmaður sveitarstjórnar og gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við, vinnur að framfaramálum og leiðir uppbyggingu og þróun í sveitarfélaginu.
  •  Upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir, fyrirtæki, íbúa og aðra hagsmunaaðila.
  • Vinnur að stefnu og framtíðarsýn sveitarstjórnar í málefnum sveitarfélagsins.
  • Ábyrgð á verkefnum hafnarstjóra.
 
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði og reynsla af störfum á sveitarstjórnarstigi er æskileg.
  • Áhugi á uppbyggingu samfélagsins, kynningarmálum, ímynd og stefnumótun.
  • Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku og íslensku.
 
Múlaþing varð til við sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi; Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Við sameiningu í lok árs 2020 varð til eitt af víðfeðmustu sveitarfélögum landsins, um 10.671 ferkílómetrar að flatarmáli sem er rúm 10% af flatarmáli Íslands. Fjölbreytileiki svæðisins er því mikill, allt frá sjó og inn til jökla.
Sameining hefur haft fjölmarga jákvæða kosti í för með sér. Stjórnsýslan er öflugri, rekstur hagkvæmari og þjónusta betri, og um leið er byggðakjörnunum áfram tryggt ákvörðunarvald í mikilvægum málum sem snerta nærsamfélagið með heimastjórnum á hverjum stað. Stærra og fjölbreyttara sveitarfélag hefur einnig í för með sér meiri grósku í mannlífi og fleiri tækifæri í atvinnulífi sem gerir sveitarfélagið eftirsóknarvert hvað varðar búsetu, fjárfestingar og heimsóknir ferðamanna.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Sandholt ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og með henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.