Veghönnuður

VSB

Hafnarfjörður

VSB verkfræðistofa óskar eftir áhugasömum, sjálfstæðum og drífandi tækni- eða verkfræðingi með sérhæfingu í hönnun gatna og vega á byggðatæknisviði fyrirtækisins. Í boði eru fjölbreytt verkefni á fjölskylduvænum vinnustað með góðum starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hönnun gatna og vega
  • Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlana
  • Verkefnastýring
  • Samskipti við verkkaupa og aðra hagaðila
  • Önnur tilheyrandi verkefni við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun á sviði tækni- eða verkfræði
  • Haldbær reynsla af hönnun gatna og vega
  • Þekking af helstu hönnunar– og greiningartólum s.s. AutoCAD og Civil 3d
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi:
  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinnustefna
  • Sími og símareikningur greiddur af VSB
  • Íþróttastyrkur
Um VSB
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði skipulags, hönnunar og framkvæmda sem veitir viðskiptavinum ráðgjöf þar sem hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði. Á VSB er öflugt byggðatæknisvið þar sem starfa í dag 9 sérfræðingar við hönnun gatna, veitna og mælingar. VSB hefur aðsetur að Bæjarhrauni 20 í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VSB www.vsb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og í síma 511 1225.