Launafulltrúi
Viðskiptavinur Intellecta
Reykjavík
Fyrirtæki á stór höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða öflugan launafulltrúa til starfa. Um er að ræða fjölbreytt starf í lifandi starfsumhverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
-
Þjónusta við starfsfólk og stjórnendur
-
Launavinnsla, frágangur launa og umsjón kerfa
-
Greiningar, samantekt og úrvinnsla á sviði launa- og kjaramála
-
Túlkun kjarasamninga og eftirlit með framkvæmd þeirra
-
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af launavinnslu
-
Jákvæðni, frumkvæði og framúrskarandi samskiptahæfni
-
Gott vald á íslensku og ensku
-
Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel
-
Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar í síma 511 1225 eða á [email protected]