Sérfræðingar tækni- og kerfismála á varnarmálasviði Landhelgisgæslu Íslands
Landhelgisgæsla Íslands
Suðurnes/Reykjavík
Hefur þú góða þekkingu og reynslu af tækni- og kerfismálum og langar að prófa nýjar áskoranir?
Landhelgisgæsla Íslands leitar að áhugasömum og traustum liðsfélögum í samhentan hóp sérfræðinga á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli sem bera ábyrgð á sérhæfðum tækni- og kerfismálum, þar með talið rekstri, viðhaldi, uppsetningu og þróun á tækni- og kerfisbúnaði Atlantshafsbandalagsins hér á landi.
Búnaðurinn og kerfin samanstanda m.a. af stjórnstöðvar-, ratsjár-, fjarskipta-, samskipta- og kerfisbúnaði sem staðsettur er í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og á ratsjár- og fjarskiptastöðvum Atlantshafsbandalagsins á Miðnesheiði, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi. Starfið krefst m.a. skipulagðra og tilfallandi ferða út á stöðvarnar á öllum tímum ársins.
Varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar annast framkvæmd rekstrartengdra varnarverkefna. Unnið er samkvæmt kröfum, stöðlum, reglum og leiðbeiningum Atlantshafsbandalagsins og fær viðkomandi viðeigandi þjálfun í þeim verkefnum, hér á landi og eftir því sem við á erlendis, hjá stofnunum Atlantshafsbandalagsins og aðildaþjóðunum. Um er að ræða dagvinnu ásamt bakvöktum og/eða tilfallandi vinnuskyldu utan dagvinnutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Rekstur, viðhald og bilanagreining
- Uppsetning á hátæknibúnaði og kerfum Atlantshafsbandalagsins
- Sérhæfður tækni- og kerfisrekstur
- Kerfisþróun og tengd verkefni
- Uppfærsla handbóka, leiðbeininga og teikninga
- Skýrslugerð, áætlanir og eftirlit
- Viðhald varahluta, verkfæra og mælitækja
- Þátttaka í þjálfunarverkefnum
- Þátttaka í tækni- og kerfissamstarfi Atlantshafsbandalagsins
- Þjálfun starfsmanna og stuðningur við erlendan liðsafla
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi, s.s. rafeindavirkjun eða kerfis- og tæknimenntun á háskólastigi
- Þekking og/eða reynsla af viðhaldi véla og tækja er kostur
- Handlagni og reynsla af viðhaldi, viðgerðum og uppsetningu á rafeindabúnaði
- Þekking á kerfis- og hugbúnaði ásamt virkni netkerfa er kostur
- Fagmennska, samskiptahæfni og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
- Reglusemi, nákvæmni, snyrtimennska og stundvísi
- Ökuréttindi
- Góð enskukunnátta
- Vegna eðlis starfs og starfseminnar er búseta á Suðurnesjum kostur
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 250 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska. Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð. Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2025. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.