RARIK

Án staðsetningar

Þjónustufulltrúi

Langar þig að taka stökkið og verða hluti af liðsheild sem innleiðir þriðju orkuskiptin á Íslandi?

Þjónustuverið er gagnslaust án þjónustufulltrúanna. Ráðir þú yfir lipurð og ábyrgðarkennd sem þú getur hagnýtt í þágu viðskiptavina okkar, viljum við endilega heyra frá þér. Við viljum veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu. Þú myndir sinna fjölbreyttum þörfum viðskiptavina og innleiða umbætur sem bæta enn betur upplifun þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita viðskiptavinum RARIK ráðgjöf og þjónustu
  • Svörun fyrirspurna vegna framkvæmdaverkefna

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Menntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af rafveitustörfum er æskileg
  • Þekking á starfsemi dreifiveitna er kostur
  • Jákvætt hugarfar og þjónustulund
  • Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
  • Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun
  • Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
  • Afbragðs færni til að tjá sig í ræðu og riti

Nýju skipulagi fylgja ný tækifæri. Með teymisvinnu og öflugri liðsheild náum við lengra. Öll störfin eru án staðsetningar og leggjum við áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika mannauðs. Við tökum vel á móti öllum.

Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Henrietta Þóra Magnúsdóttir ([email protected]).