RARIK

Án staðsetningar

Gagnasérfræðingur – Vöruhús gagna

Langar þig að taka stökkið og verða hluti af liðsheild sem innleiðir þriðju orkuskiptin á Íslandi?

Umfangsmikil stafræn þróun á sér stað hjá RARIK. Við þurfum til dæmis nýja snjallmæla vegna þriðju orkuskiptanna. Ef þinn aflvaki er að verða leiðandi í að breyta gögnum í gagnlegar upplýsingar, greiðum við götu þína í þetta starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tengja saman og sannreyna gögn úr upplýsingatæknikerfum fyrirtækisin
  • Undirbúa gögn til frekari úrvinnslu og framsetningar

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Umfangsmikil reynsla af uppbyggingu á vöruhúsi gagna með Microsoft SQL gagnagrunni
  • Reynsla af uppsetningu gagna til frekari úrvinnslu með tólum eins og PowerBI
  • Jákvætt hugarfar og þjónustulund
  • Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
  • Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun
  • Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
  • Afbragðs færni til að tjá sig í ræðu og riti

Nýju skipulagi fylgja ný tækifæri. Með teymisvinnu og öflugri liðsheild náum við lengra. Öll störfin eru án staðsetningar og leggjum við áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika mannauðs. Við tökum vel á móti öllum.

Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veita
Henrietta Þóra Magnúsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).