RARIK
Án staðsetningar
Tvær stöður verkefnastjóra
Langar þig að taka stökkið og verða hluti af liðsheild sem innleiðir þriðju orkuskiptin á Íslandi?
Ný stefna RARIK og skipulag leggur aukna áherslu á verkefnamiðaða vinnu. Við höfum því sett upp verkefnastofu, en tilgangur hennar er að stýra verkefnum þvert á svið fyrirtækisins. Hér beislum við afl hugvitsins í fyrirtækinu. Ef þú treystir þér til að draga fram það besta í fólkinu okkar, gætir þú verið verkefnastjórinn sem við leitum að.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stýring verkefna með ólíkum sviðum fyrirtækisins
- Koma á verkefnamiðuðu skipulagi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða alþjóðleg vottun verkefnastjóra
- Haldbær reynsla af verkefnastjórnun
- Þekking og reynsla af Scrum/Agile og notkun á Kanban borði
- Jákvætt hugarfar og þjónustulund
- Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
- Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
- Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun
- Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
- Afbragðs færni til að tjá sig í ræðu og riti
Nýju skipulagi fylgja ný tækifæri. Með teymisvinnu og öflugri liðsheild náum við lengra. Öll störfin eru án staðsetningar og leggjum við áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika mannauðs. Við tökum vel á móti öllum.
Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Henrietta Þóra Magnúsdóttir ([email protected]).