Forstöðumaður framkvæmda

Sveitarfélagið Skagafjörður

Sauðárkrókur

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf forstöðumanns framkvæmda. Um nýtt starf er að ræða sem heyrir beint undir sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs. Forstöðumaður mun bera ábyrgð á nýframkvæmdum, gatnagerð og stærri viðhaldsframkvæmdum ásamt því að hafa yfirumsjón með fráveitum í sveitarfélaginu. Forstöðumaður er millistjórnandi og mun garðyrkjudeild, þjónustumiðstöð, eignasjóður og umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi heyra undir hann. Um 100% starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Ábyrgð á framkvæmdum og viðhaldi á eignum sveitarfélagsins, m.a. fasteignum, fráveitu og gatnakerfi í samráði við sviðsstjóra.
  • Upplýsingaöflun og miðlun, ráðgjöf, skýrslugerð og úttektir.
  • Uppbygging á upplýsingakerfum og gagnagrunnum sveitarfélagsins.
  • Eftirfylgni fjárhagsáætlana.
  • Uppgjör verka og samþykkt reikninga.

Menntunar- og hæfniskröfur: 
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. í verk-, bygginga- eða tæknifræði.
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi eða víðtæk stjórnunar- og/eða rekstrar reynsla.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu.
  • Reynsla af fráveitu og verklegum framkvæmdum.
  • Reynsla af rekstri og mannaforráðum.
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði, fagmennska, skipulagshæfni og nákvæmni.
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér tækninýjungar.
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkfræðingafélag Íslands.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs í síma 455 6205 ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi. Jafnframt skulu prófskírteini fylgja umsókn.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.