Starfsmaður í móttöku

Sól - Sálfræði- og læknisþjónusta

Kópavogur

Sól, sálfræði- og læknisþjónusta, óskar eftir að ráða til sín jákvæðan og drífandi aðila í 60% starf. Starfið felur í sér móttöku skjólstæðinga, símsvörun og tímabókanir auk almennra skrifstofustarfa. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af móttökustörfum í heilbrigðisþjónustu og geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn símsvörun og tölvupóstsamskipti
  • Móttaka gagna og vörupantana og umsjón með innkaupum
  • Skráning og bókanir í sjúkraskrá
  • Önnur almenn skrifstofustörf

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og rík þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Um Sól:
Sól er sálfræði- og læknisþjónusta fyrir börn, fjölskyldur og ungmenni. Á stofunni starfar fjölbreytt teymi sérfræðinga og er markmið SÓLAR að bæta þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Lögð er sérstök áhersla á samræmda þjónustu á einum stað sem auðveldar aðgengi að sérfræðingum og úrræðum. Nánari upplýsingar um Sól má finna á www.sol.is.

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.