Leikskólakennari
Mýrdalshreppur
Mýrdalshreppur
Leikskólinn Mánaland óskar eftir að ráða leikskólakennara sem hafa áhuga á að ganga til liðs við hóp faglegs starfsfólks og taka þátt í að þróa starfið ásamt því að vera hluti af samfélaginu okkar. Skólinn er nýfluttur í glæsilegt nýtt húsnæði í Vík sem hannaður var sem 60 barna, þriggja deilda leikskóli þar sem lögð var áhersla á góða hljóðvist og góða aðstöðu í alla staði fyrir börn og starfsfólk.
Leikskólinn Mánaland er heilsueflandi leikskóli staðsettur í Vík í Mýrdal. Lögð er áhersla á holla og góða næringu auk góðrar almennrar lýðheilsu. Mánaland er fjölmenningarlegur leikskóli og teljum við að öll börn geti notið sín á sínum forsendum. Styrkleiki leikskólans felst í fjölbreytni; það er í lagi að vera ólíkur öðrum. Við leikum, lærum og eigum í samskiptum án fordóma. Lögð er áhersla á að efla samvinnu og samkennd í barnahópnum auk þess að byggja upp jákvæða sjálfsmynd allra barna þannig að þau geti sýnt styrkleika sína og þekkingu.
Sveitarstjórn samþykkti nýlega breytingar í leikskólaþjónustu með það að markmiði að bæta enn frekar náms- og starfsumhverfi leikskólans þannig að tryggja megi stöðugleika í starfinu, farsæld barna og velferð og vellíðan starfsfólks ásamt því að gera starfsumhverfi leikskólans aðlaðandi. Breytingarnar sem verða innleiddar í haust eru meðal annars að hámarksvistunartími barna verði 36 klst. á viku, tveir skráningardagar verða innleiddir vegna foreldraviðtala, vinnustytting starfsfólks verður tekin út með lokun skólans, fjórir dagar verða sérstaklega skilgreindir vegna undirbúnings leikskólastarfs og fimm starfsdagar á ári.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
- Þátttaka í innleiðingu nýs skóladagatals, gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans.
- Þátttaka í mótun og uppbyggingu nýja leikskólans.
- Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Náið samstarf við foreldra/forráðamenn.
- Stuðlar að gleði barna og ánægju foreldra ásamt gæðum í skólastarfi.
- Önnur tilfallandi verkefni sem falin eru af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
- Góð íslenskukunnáttu skilyrði (á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
- Reynsla og þekking á leikskólastarfi.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Skapandi hugsun og metnaður í starfi.
- Hæfni til að taka þátt í lærdómssamfélagi í þróun.
Við bjóðum upp á:
- Vinnustyttingu sem tekin er út með haustfríi, jólafríi og í Dymbilviku.
- Skipulagða undirbúningstíma utan deildar.
- Tímabundin viðbótarlaun (TV-einingar)
- Sveitarfélagið aðstoðar við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk sem flytur til okkar.
- Tækifæri til símenntunar.
- Umfram allt skemmtilegan vinnustað.
Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en 5. ágúst 2025. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá. Umsóknir án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa á Mánalandi þurfa að gefa heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn leiðbeinandi eða starfsmaður með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu. Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Mýrdalshrepps við ráðningu í starfið. Áhugasamir einstaklingar, óháð kynþætti, þjóðernisupprunna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu, eru hvattir til að sækja um. Karlmenn og kynsegin eru sérstaklega hvött til að sækja um í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan leikskólans, sbr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands við Félags leikskólakennara.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veita Erla Jóhannsdóttir leikskólastjóri ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi hjá Intellecta ([email protected]) í síma 511 1225.