Umsjónarkennari á yngsta- og/eða miðstigi

Víkurskóli

Vík í Mýrdal

Víkurskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stigi og/eða miðstigi. Mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda meðal nemenda og starfsfólks. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi með góða færni í mannlegum samskiptum. Um fullt starf er að ræða.

Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og annarra starfsmanna um fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn kennsla og umsjón á yngsta og/eða miðstigi
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa góðan skólabrag

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Leyfisbréf til kennslu
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf

Við bjóðum upp á:
  • Aðstoð við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk
  • Góðan starfsanda og liðsheild
  • Fjölbreytt og öflugt skólastarf

Umsóknarfrestur til og með 1. júní n.k. Staðan eru laus frá 1. ágúst 2025 Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í  síma  4871242 / 7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is