Kennari - ýmis fög

Víkurskóli

Vík í Mýrdal

Víkurskóli óskar eftir að ráða til starfa kennara sem gæti tekið að sér enskukennslu, kennslu í samfélagsfræði á unglingastigi, textílkennslu og valgreinar á unglingastigi. Aðrar greinar koma jafnframt til greina. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst.

Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og annarra starfsmanna um fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn kennsla
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa góðan skólabrag

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa  með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf

Við bjóðum upp á:
  • Aðstoð við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk
  • Mjög góður starfsandi og liðsheild
  • Fjölbreytt og öflugt skólastarf

Umsóknarfrestur til og með 1. júní nk. Staðan eru laus frá 1. ágúst 2025.  Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.  Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í  síma  4871242 / 7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is.