Forstöðumaður þróunar- og þjónustusviðs
Ferðamálastofa
Reykjavik
Ferðamálastofa óskar eftir að ráða forstöðumann þróunar- og þjónustusviðs. Forstöðumaður stýrir daglegu starfi sviðsins í samráði við ferðamálastjóra. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Dagleg stýring þróunar- og þjónustusviðs
- Leiða sjálfbærni-, öryggis- og gæðamál, stafræna þróun, nýsköpun og uppbyggingu
- Veita stuðning við svæðisbundna þróun
- Náið samstarf við markaðs- og áfangastofur landshlutanna
- Önnur tilfallandi verkefni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er æskileg
- Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
- Reynsla og þekking á sviði ferðaþjónustu er nauðsynleg
- Innsýn í sjálfbæra þróun ferðaþjónustu sem og stafræna þróun og nýsköpun í ferðaþjónustu er æskileg
- Farsæl reynsla af verkefnastjórnun er nauðsynleg
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Fagmennska, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi um hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra viðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðuneytis við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veita Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri ([email protected]) og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]).