Lögfræðingur
Neytendastofa
Reykjavík
Neytendastofa óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan lögfræðing. Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík. Ráðið verður í starfið frá og með 1. september 2025.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem unnið er að verkefnum á sviði neytendaverndar. Undir verksvið stofnunarinnar falla t.d. viðskiptahættir og markaðssetning á öllum mörkuðum og því eru verkefnin síbreytileg og taka mið af tíðaranda og aðstæðum í þjóðfélaginu hverju sinni. Stofnunin sinnir einnig eftirliti með upplýsingagjöf til neytenda fyrir og við samningsgerð auk sérstaks eftirlits með neytendalánum, fasteignalánum til neytenda og samningum um pakkaferðir, svo dæmi séu tekin. Starfið heyrir undir yfirlögfræðing.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Leiðbeiningar og ráðgjöf til fyrirtækja og neytenda vegna fyrirspurna og ábendinga
- Afgreiðsla stjórnsýsluerinda þ.m.t. undirbúningur og ritun stjórnvaldsákvarðana
- Aðkoma að gerð reglna, leiðbeinandi reglna og leiðbeininga
- Samskipti og ráðgjöf við önnur stjórnvöld og hagaðila
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Grunn- og meistaranám eða embættispróf í lögfræði
- Reynsla eða þekking á sviði neytendaréttar er kostur
- Reynsla eða þekking á sviði stjórnsýsluréttar er kostur
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, áreiðanleiki, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Færni í mannlegum samskiptum og geta til að starfa í hóp
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar:
Hlutverk Neytendastofu er að treysta öryggi og réttindi neytenda í viðskiptum og annast eftirlit og framkvæmd laga um neytendavernd. Stofnunin sinnir stjórnsýsluverkefnum á sviði neytendamála, sbr. lög um stofnunina nr. 62/2005.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja prófskírteini, ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Um er að ræða fullt starf og eru laun samkvæmt viðeigandi kjarasamningi opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.